Enska úrvalsdeildarfélagið Leicester Riders hefur samið við framherjann og fyrrum breska landsliðsmanninn Callum Lawson.
Lawson er íslenskum körfuboltaáhugamönnum afar kunnugur en hann hefur leikið hér á landi um árabil með Þór Þorlákshöfn, Keflavík, Tindastóli og Val, og orðið margfaldur Íslandsmeistari. Hann snýr nú aftur á heimaslóðir og mun þreyta frumraun sína með Riders í leik gegn Bristol Flyers í kvöld.




