HomeNeðri deildir1. deild kvennaEfnilegar sömdu við KR: Fyrstu samningarnir í höfn hjá Rakel og Rakel...

Efnilegar sömdu við KR: Fyrstu samningarnir í höfn hjá Rakel og Rakel Maríu

KR hefur samið við tvær efnilegar körfuknattleikskonur, þær Rakel Þorvaldsdóttur og Rakel Maríu Pálmadóttur, sem báðar skrifuðu nýverið undir sína fyrstu samninga við deildina.

Rakel Þorvaldsdóttir er uppalin í Vesturbænum og hefur leikið með félaginu upp alla yngri flokka. Hún þreytti frumraun sína í úrvalsdeildinni á dögunum þegar KR lagði Val að velli, auk þess sem hún mun leika með venslaliði KV í 1. deild kvenna í vetur. Þá lék hún með U15 ára landsliði Íslands síðastliðið sumar við góðan orðstír.

Rakel María er uppalin hjá Skallagrími og lék upp alla yngri flokka í Borgarnesi. Hún mun leika á venslasamningi með Skallagrími í 1. deildinni samhliða því að spila með yngri flokkum KR.

Fréttir
- Auglýsing -