HomeBónus deildinBónus deild karlaHver verður besti ungi leikmaðurinn í vetur?

Hver verður besti ungi leikmaðurinn í vetur?

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar barst spurning til sérfræðinganna um það hver væri líklegastur til að hljóta nafnbótina besti ungi leikmaðurinn í Bónusdeild karla á komandi tímabili.

Styrmir Jónasson, sem lék með ÍA en gekk til liðs við Ármann í sumar, hlaut nafnbótina á síðustu leiktíð. Í umræðunni kom fram að nokkrir efnilegir leikmenn væru orðnir of gamlir til að koma til greina í þennan flokk, en þó væri gríðarlega mikil breidd af ungum hæfileikamönnum sem gætu blandað sér í baráttuna.

Sérfræðingar þáttarins voru á því að Arnór Tristan Helgason úr Grindavík væri langlíklegastur til að standa uppi sem besti ungi leikmaðurinn í vetur. Aðrir leikmenn sem voru nefndir til sögunnar sem líklegir til að láta að sér kveða í baráttunni eru:

  • Viktor Jónas Lúðvíksson (Stjarnan)
  • Lars Erik Bragason (KR)
  • Styrmir Jónasson (Ármann)
  • Magnús Dagur (Sindri)
  • Tómas Orri (ÍR)
Tómas Orri

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -