HomeÚti í heimiEvrópaFullt hús stiga hjá Jóni Axel og Kristni á Spáni 

Fullt hús stiga hjá Jóni Axel og Kristni á Spáni 

Lið Íslendinganna Jóns Axels Guðmundssonar og Kristins Pálssonar sitja í tveimur efstu sætum spænsku B-deildarinnar í körfuknattleik eftir sigra í fyrstu tveimur leikjum tímabilsins.  

Bæði lið unnu örugga útisigra í nýliðinni umferð. Kristinn og samherjar hans í Alicante lögðu Menorca að velli, 81:64, þar sem Kristinn skilaði þremur stigum, tveimur fráköstum og tveimur stoðsendingum á 17 mínútum. Þá fóru Jón Axel og félagar í Gran Canaria með 79:68-sigur af hólmi gegn Fuenlabrada, en Jón Axel skoraði níu stig, gaf þrjár stoðsendingar og tók eitt frákast á þeim 23 mínútum sem hann spilaði.

Fréttir
- Auglýsing -