KR fagnar stórum tímamótum í dag en réttir sjötíu áratugir eru liðnir frá því að deildin var stofnuð þann 4. október árið 1956.
Lengst af hefur verið á reiki hvenær réttur stofndagur væri, en oftast höfðu dagsetningarnar 13. eða 30. október verið nefndar til sögunnar. Samkvæmt blaðaumfjöllun í Vísi frá þeim tíma kemur hins vegar skýrt fram að stofnfundurinn fór fram í félagsheimili KR fimmtudaginn 4. október 1956.

Þar var Pétur Rögnvaldsson kjörinn fyrsti formaður deildarinnar ásamt þeim Sigurði Gíslasyni, Hermanni Hallgrímssyni, Helga Sigurðssyni og Birgi Helgasyni í aðalstjórn.
Saga félagsins er glæst en fyrsti Íslandsmeistaratitillinn kom í hús árið 1961 þegar meistaraflokkur kvenna hampaði titlinum, og fjórum árum síðar fylgdu karlarnir í fótspor þeirra árið 1965.

Í heildina hafa KR-konur fagnað Íslandsmeistaratitlinum 14 sinnum á meðan karlaliðið hefur landað stóra titlinum 18 sinnum. Til stendur að fagna stórafmælinu með veglegri afmælisveislu og útgáfu afmælisblaðs í nóvember.
Hér er færsla KR á samfélagsmiðlum




