Landsliðsmaðurinn Styrmir Snær Þrastarson og félagar hans í Rapid Búkarest máttu þola tap gegn grönnum sínum í Dinamo Búkarest, 87:62, í efstu deild Rúmeníu í körfuknattleik.
Þetta var fyrsti leikur Styrmis fyrir rúmenska liðið eftir að hafa gengið til liðs við félagið frá Zamora á Spáni. Styrmir lét strax að sér kveða og var stigahæstur í liði Rapid með 15 stig, auk þess sem hann tók fjögur fráköst og gaf fjórar stoðsendingar.




