Hlaðvarpið Uncoachables er snúið aftur eftir sumarfrí með nýjan þátt úr stúdíóinu Rabbrýminu. Umsjónarmennirnir Helgi Hrafn Ólafsson og David Patchell fóru yfir helstu félagaskipti sumarsins, nýafstaðna leiki karlalandsliðsins og óskuðu ríkjandi meisturum til hamingju, áður en þeir opinberuðu spá sína fyrir Bónus deildir karla og kvenna.
Niðurstaða spárinnar var fengin út með því að finna meðaltal úr mati þeirra tveggja. Samkvæmt spá Uncoachables verja ríkjandi meistarar titla sína beggja vegna; Grindavík er spáð toppsætinu í karlaflokki og Njarðvík í kvennaflokki.

Spá Uncoachables fyrir Bónus deild karla
- Grindavík
- Álftanes
- Tindastóll
- KR
- Stjarnan
- Valur
- Keflavík
- ÍR
- Njarðvík
- Ármann
- Sindri
- Höttur

Spá Uncoachables fyrir Bónus deild kvenna
- Njarðvík
- Haukar
- Grindavík
- KR
- Valur
- Keflavík
- Ármann
- Stjarnan
- Tindastóll
- Fjölnir
Þátturinn er aðgengilegur hér fyrir ofan og undir nafni Körfunnar á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




