HomeBónus deildinBónus deild karlaHvar liggur mesta pressan fyrir komandi leiktíð?

Hvar liggur mesta pressan fyrir komandi leiktíð?

Nýjasti þáttur Aukasendingarinnar er kominn í loftið og er óhætt að segja að farið hafi verið yfir sviðið af miklum krafti. Gestir þáttarins að þessu sinni voru þeir Heisi Högg og Mummi Jones.

Saman fóru þeir yfir helstu augnablik síðasta tímabils, rýndu í „þak og gólf“ allra liða í Bónusdeild karla og tóku fyrir eina heitustu spurninguna fyrir veturinn: Hverjir finna fyrir mestu pressunni áður en flautað verður til leiks?

Hérna er þátturinn á Spotify

Í þættinum stilltu þeir upp lista yfir þá einstaklinga sem bera þyngstu væntingarnar á sínum herðum í vetur, ásamt nokkrum öðrum sem komust á blað.

Þátturinn er aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Bragi Guðmundsson

Mesta pressan fyrir tímabilið

1. Baldur Þór Ragnarsson – Álftanes

2. Bragi Guðmundsson – Keflavík

3. Ilija Omrcen – Þór Þorlákshöfn

4. Rúnar Ingi Erlingsson – Njarðvík

5. Styrmir Jónasson – ÍA

Einnig nefndir: Viðar Örn Hafsteinsson / Hetti, Emil Barja / Stjarnan og Kári Jónsson og Kristófer Acox úr Val.

Fréttir
- Auglýsing -