ÍR hefur samið við króatíska kraftframherjann Dani Koljanin fyrir komandi keppnistímabil.
Koljanin er ÍR-ingum vel kunnur en hann gekk til liðs við félagið um mitt tímabil 2024–2025 og átti stóran þátt í að rétta af gengi liðsins á þeirri leiktíð. Hinn 203 sentímetra hái framherji lék á síðasta vetri með Hetti í 1. deildinni eftir að hafa spilað á Ítalíu fyrri hluta tímabilsins.
Borche Ilievski, þjálfari ÍR, lýsir yfir mikilli ánægju með endurkomu Koljanin og segir hann færa hópnum mikilvægan styrk, baráttu og reynslu fyrir komandi átök í vetur.




