HomeBónus deildinBónus deild karlaÖflugur liðsstyrkur á Krókinn

Öflugur liðsstyrkur á Krókinn

Tindastóll hefur samið við bandaríska bakvörðinn og vængmanninn Jalen Adaway fyrir komandi tímabil.

Adaway er 196 cm leikmaður með reynslu úr NCAA, NBA G League og Evrópuboltanum, en hann varð meðal annars meistari í Slóvakíu með Patrioti Levice.

Arnar þjálfari fagnar komu Adaway og segir hann öflugan íþróttamann sem geti spilað hörkuvörn og skapað hættu í sókninni. Sjálfur segist Adaway spenntur fyrir áskoruninni á Sauðárkróki og ætlar að gefa allt sitt í leik liðsins á komandi tímabili.

Fréttir
- Auglýsing -