Grindavík tók forystuna í einvígi sínu gegn Val í undanúrslitum Bónus deildar karla með naumum eins stig sigur í hörkuleik þar sem lokatölur urðu 82 gegn 81.
Grindavík leiðir því einvígið 1-0 en vinna þarf þrjá leiki til að tryggja sér sæti í úrslitaeinvíginu um sjálfan Íslandsmeistaratitilinn.
Karfan spjallaði við Ólaf Ólafsson leikmann Grindavíkur eftir leik í HS orku höllinni.






