HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík knúði fram sigur í svakalegum spennuleik

Grindavík knúði fram sigur í svakalegum spennuleik

Fyrsti leikur Grindavíkur og Vals í undanúrslitum Bónusdeildar karla fór fram í kvöld og var búist við sterki frammistöðu heimamanna eftir góða hvíld og gott gengi í deildinni.

Valsmenn mættu hins vegar til leiks af miklum krafti og sýndu strax í fyrsta leikhluta að þeir ætluðu sér stóra hluti með firnasterkum varnarleik. Þrátt fyrir að Kane hafi opnað leikinn vel fyrir Grindavík, svöruðu gestirnir með 12 stigum í röð og leiddu 11-19 eftir fyrsta fjórðung, þar sem meiðsl beggja liða settu svip sinn á upphafið.

Vandræði Grindavíkur héldu áfram í öðrum leikhluta þegar Valur skoraði fyrstu sex stigin, sem neyddi Jóhann Þór til að taka leikhlé. Þótt leikurinn hafi jafnast í kjölfarið náðu heimamenn ekki að brúa bilið fyrir hálfleik. Varnarleikur Grindvíkinga var á köflum óöruggur á meðan Valsmenn héldu sínu striki og gengu til búningsherbergja með þægilegt tíu stiga forskot, 29-39, eftir baráttuglaðan fyrri hálfleik þar sem bæði lið þurftu að glíma við smávægileg áföll í leikmannahópnum.

Grindvíkingar mættu dýrvitlausir til síðari hálfleiks og tókst að minnka muninn niður í eitt stig áður en Valur svaraði aftur fyrir sig. Þrátt fyrir harða atlögu heimamanna tókst Val að halda forystunni út þriðja leikhluta, staðan 58-64, en það var aðeins forsmekkurinn að þeirri dramatík sem koma skyldi. Í fjórða leikhluta náði spennan hámarki; Igor Maric raðaði niður þristum fyrir Val en Grindavík neitaði að gefast upp og jafnaði metin þegar tæpar tvær mínútur voru eftir af klukkunni.

Lokasekúndurnar voru spennutryllir þar sem Grindavík tryggði sér ótrúlegan 82-81 sigur eftir að lokaskot Valsmanna geigaði. Deandre Kane fór fyrir sínum mönnum með 30 stig, en hjá Val var Keyshawn Woods atkvæðamestur með 24 stig. Með þessum sigri tekur Grindavík forystuna í einvíginu, en ljóst er að næsti leikur í N1-höllinni þann 26. apríl verður ekki síður spennandi þar sem Valsmenn munu selja sig dýrt.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -