Eins og allir tóku eftir og mikið hefur verið rætt og ritað um, þá var mikill hasar í leik Grindavíkur og Njarðvíkur í 1. leik í 8 liða úrslitum Bónusdeildar karla.
Þegar rúm mínúta var eftir af leiknum brutust út slagsmál sem tók tíma að stoppa og leysa og eftir það tóku dómarar leiksins sér góðan tíma í að finna út hvað ætti að dæma. Þegar þeir höfðu lokið skoðun sinni var fæstum ljóst hver niðurstaðan var önnur en að Njarðvík fékk 2 víti, Grindavík 4 víti og innkast á hliðarlínu.
Karfan.is hafði samband við Rúnar Birgi Gíslason eftirlitsmann leiksins til að fá það á hreint hvað var verið að dæma þarna og afhverju niðurstaðan var þessi. Rúnar var til í að útskýra niðurstöðuna en sagði jafnframt að allir geti haft sína skoðun á hvort dómarnir eru réttir eða rangir, dómararnir þurftu undir mikilli pressu að koma með niðurstöðu og fylgja henni. Rúnar bætti við að atvik sem þessi eru sem betur fer mjög sjaldgæf og því þurfa dómarar að notast við reglur sem þeir nota blessunarlega mjög sjaldan.
Það er líka rétt að taka fram að dómarar skoðuðu myndefni úr Spiideo vél í húsinu en ekki útsendingu Sýnar svo það sem þeir sáu gæti verið annað en hinn almenni áhorfandi sá heima í stofu.
Samkvæmt Rúnari féllu dómar eftirfarandi:
Sóknarvilla á grænan #23 (Lautier)
Óíþróttamannsleg villa á gulan #8 (Breki) – refsing fyrir það er 2 skot og bolti
Óíþróttamannsleg villa á grænan #2 (Pipkins) – refsing fyrir það er 2 skot og bolti
Óíþróttamannsleg villa á gulan #45 (Semple) – refsing fyrir það er 2 skot og bolti
Brottrekstrarvilla á grænan #67 (Milka) – refsing fyrir það er 2 skot og bolti
Villa vegna slagsmála á bekkinn hjá gulum – refsing tæknivilla á þjálfara og 2 skot
2 villur vegna slagsmála á bekkinn hjá grænum – refsing tæknivilla á þjálfara og 2 skot
Þá var komið að því jafna út það sem er eins. Þar varð dómurum það á að jafna ekki allt út sem átti að jafna út og veittu aukalega 2 víti vegna 2 villna vegna slagsmála.
Rétt niðurstaða er að það áttu ekki að vera nein víti því allt hefði jafnast út hvert gegn öðru og því átti Grindavík innkast eftir sóknarvilluna á grænann #23 (Lautier)
Einhverjir eru eflaust að spá í villur vegna slagsmála og er það ekki skrýtið enda reynir mjög sjaldan á það í íslenskum körfubolta.
Reglan er sú að við aðstæður þar sem slagsmál eiga sér stað mega þjálfari og aðstoðarþjálfari fara inn á völlinn til að aðstoða við að stilla til friðar. Hver sá sem stígur inn á völlinn af bekknum skal rekinn út, sama hvort hann tekur þátt eða ekki, eini munurinn er að ef viðkomandi tekur ekki þátt þá eru bara 2 víti, en ef viðkomandi tekur þátt þá eru 2 víti fyrir hvern einstakling sem tekur þátt. Þeir sem fóru inn á í gær tóku ekki þátt og því voru bara 2 víti á hvort lið.
Vonandi skýrir þetta eitthvað hvaða ákvarðanir voru teknar og vonandi læra einhverjir eitthvað af þessu.




