HomeLandsliðinEuroBasket 2027Tvær kallaðar inn í íslenska hópinn fyrir leikinn gegn Portúgal

Tvær kallaðar inn í íslenska hópinn fyrir leikinn gegn Portúgal

Ásta Júlía Grímsdóttir og Eva Wium Elíasdóttir hafa verið kallaðar inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Portúgal í kvöld, en Ásta snýr aftur eftir að hafa misst af viðureigninni í Serbíu vegna meiðsla. Þær koma inn í tólf manna hópinn fyrir Kolbrúnu Maríu Ármannsdóttur og Þórönnu Kiku Hodge-Carr sem geta ekki tekið þátt í verkefninu vegna meiðsla sem þær urðu fyrir. Pekka Salminen landsliðsþjálfari og teymi hans þurftu því að hrófla talsvert í hópnum fyrir þennan mikilvæga slag.

Leikurinn hefst klukkan 19:30 í Ólafssal og er búist við mikilli stemningu enda er frítt inn á völlinn í boði Lengjunnar á meðan húsrúm leyfir. Hópurinn sem mætir Portúgal í kvöld er þannig skipaður:

Anna Ingunn Svansdóttir – Keflavík
Ásta Júlía Grímsdóttir – Valur 
Danielle Rodriguez – Njarðvík
Eva Wium Elíasdóttir – Stjarnan
Isabella Ósk Sigurðardóttir – Grindavík
Kristrún Ríkey Ólafsdóttir – KR
Rebekka Rut Steingrímsdóttir – KR  
Sara Rún Hinriksdóttir – Keflavík 
Sigrún Björk Ólafsdóttir – Haukar
Tinna Guðrún Alexandersdóttir – Haukar
Thelma Dís Ágústsdóttir – Keflavík 
Þóra Kristín Jónsdóttir – Haukar

Fréttir
- Auglýsing -