spot_img
HomeBikarkeppniFjölnir VÍS bikarmeistarar í 11. flokki drengja

Fjölnir VÍS bikarmeistarar í 11. flokki drengja

Fjölnir urðu VÍS bikarmeistarar í 11. flokki drengja í dag eftir sigur gegn KR í úrslitaleik í Smáranum, 79-77.

Leikurinn var sá síðasti þessa vikuna, en alls fóru fram þrír úrslitaleikir í dag. Hér má sjá umfjöllun um alla leiki VÍS bikarvikunnar.

Fyrir leik

Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði KR lagt Stjörnuna með 19 stigum á Meistaravöllum í undanúrslitum á meðan Fjölnir hafði betur gegn Selfoss með 23 stigum í Dalhúsum í undanúrslitaviðureign sinni.

Stjarnan er efsta liðið í 11. flokki drengja með 10 sigra, en einum sigurleik fyrir neðan þá í 2. sæltinu er KR. Fjölnir er öllu neðar, í 5. sætinu með 5 sigurleiki á tímabilinu til þessa.

KR og Fjölnir hafa í eitt skipti mæst í deildarkeppni tímabilsins. Þann 19. nóvember hafði KR þriggja stiga sigur gegn þeim á Meistaravöllum, 83-80.

Gangur leiks

Eftir kröftuga byrjun KR nær Fjölnir að jafna leikinn um miðjan fyrsta fjórðung. Hjá Fjölnisliðinu dreifist sóknarábyrgðin nokkuð jafnt á milli leikmanna þeirra á meðan ljóst er að hinn efnilegi Benóní Stefan Andrason ætti að bera hitann og þungann fyrir KR sóknarlega í leiknum. Hann setur 13 í fyrsta leikhluta, en Fjölnir leiðir þó leikinn að fjórðungnum loknum með 3 stigum, 25-22.

Í öðrum fjórðungnum heldur vörn KR nokkuð vel. Þeir eru gífurlega mistækir sóknarlega, en þökk sé vörninni ná þeir að jafna leikinn aftur og komast yfir. Tilfinningin sú að þeir ættu að hafa getað verið 15-20 stigum yfir í hálfleik, en glötuð víti og sniðskot verða þess valdandi að munurinn er aðeins 8 stig þegar liðin halda til búningsherbergja í hálfleik, 35-43.

Stigahæstir fyrir KR í fyrri hálfleiknum Benóní með 19 og Jóhannes með 15 stig. Fyrir Fjölni var Júlíus Hrafn með 8 og Ísarr með 8 stig.

Fjölnisdrengir opna seinni hálfleikinn á snörpu 11-2 áhlaupi og eru því aftur komnir í forystu þegar skammt er liðið af seinni hálfleiknum, 46-45. KR heldur áfram óðagoti sínu sóknarlega, tapa boltum og missa sniðskot á meðan bæði er Fjölnir að setja skotin sín, þá sækja þeir vel á körfuna og eru 3 stigum yfir þegar þriðji er um það bil hálfnaður, 50-47. Undir lok þess þriðja leiðir Jóhannes KR-inga aftur framúr og er munurinn 3 stig fyrir lokaleikhlutann, 55-58.

KR setja nokkur skot í upphafi þess fjórða og skrefinu á undan þegar um fimm eru til loka leiks 67-70. Fjölnir þó ekki langt undan og er munurinn aðeins stig þegar leikurinn fer inní brakmínúturnar, 72-73.

Með 12 sekúndur eftir af leiknum í stöðunni 75-75 kemst Fjölnir á vítalínuna og setur Benóný Gunnar tvö víti, 77-75.

KR nær að jafna leikinn með 2 vítum frá Jóhannesi þegar 6 sekúndur eru eftir, 77-77.

Benóný setur svo körfu þegar tíminn er að líða út fyrir Fjölni sem vinnur leikinn fyrir þá, 79-77.

Atkvæðamestir

Maður leiksins var valinn eftir leik Benóný Gunnar Óskarsson, en fyrir utan körfurnar mikilvægu á lokasekúndunum var hann með 20 stig, 11 fráköst, 3 stoðsendingar, 3 stolna bolta og varið skot á rúmum 38 mínútum spiluðum. Honum næstur í Fjölnisliðinu var Óttar Ingimar Davíðsson (sem fyrr í dag var maður leiksins í sigri 9. flokks Fjölnis) með 10 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar.

Fyrir KR var atkvæðamestur Benóní Stefan með 34 stig, 19 fráköst, 6 stoðsendingar, 5 stolna bolta og 2 varin skot. Þá skilaði Jóhannes Ragnar Hallgrímsson 24 stigum, 15 fráköstum, 6 stoðsendingum og 5 stolnum boltum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -