Njarðvík varð VÍS bikarmeistari í 12. flokki kvenna í dag eftir sigur gegn Val í úrslitaleik í Smáranum, 87-85.
Leikurinn var annar þriggja á þessum lokadegi VÍS bikarvikunnar.
Karfan spjallaði við Huldu Maríu Agnarsdóttur leikmann Njarðvíkur eftir að leik lauk í Smáranum, en hún var valin besti leikmaður úrslitaleiksins með 30 stig, 4 fráköst, 7 stoðsendingar og 4 stolna bolta.




