Njarðvík varð VÍS bikarmeistari í 12. flokki kvenna í dag eftir sigur gegn Val í úrslitaleik í Smáranum, 87-85.
Leikurinn var annar þriggja á þessum lokadegi VÍS bikarvikunnar.
Fyrir leik
Á leið sinni í úrslitaleikinn hafði Njarðvík unnið Fjölni með 4 stigum í undanúrslitum á meðan Valur lagði sameinað lið Breiðabliks og Grindavíkur með 17 stigum í sinni undanúrslitaviðureign.
Valur er efsta liðið í deildarkeppni tímabilsins, enn taplausar eftir fyrstu 13 leiki sína. Njarðvík er hinsvegar í 3. sætinu með 9 sigra í 13 leikjum.














Gangur leiks
Valskonur fara sterkt af stað í leiknum og þá sérstaklega leikmaður þeirra Ísey Guttormsdóttir, sem komin er með 10 stig þegar fyrsti fjórðungur er hálfnaður. Njarðvík nær þó áttum eftir því sem líður á fjórðunginn, en Valur þó þægilegum 6 stigum yfir þegar fyrsti er á enda, 16-22.
Njarðvík nær að láta þennan aukna kraft fylgja liðinu inn í annan leikhlutann og hægt og bítandi vinna þær forskot Vals niður. Með þristi frá Söru Logadóttur komast þær svo loks yfir þegar 7 mínútur eru til hálfleiks, 27-26.
Leikar haldast nokkuð jafnir fram að lokum fyrri hálfleiks, en þegar liðin halda til búningsherbergja er tveggja stiga munur Njarðvík í vil, 41-39.
Hulda Agnarsdóttir var stigahæst fyrir Njarðvík í fyrri hálfleiknum með 15 stig á meðan Ísey var komin með 19 stig fyrir Val.
Mikil orka var í báðum liðum í upphafi seinni hálfleiksins og leyfa þau skotunum að fljúga á víxl. Mörg hver þeirra detta, en mörg þeirra sem fara ofaní eru skot leikmanns Vals Ásdísar Jónsdóttur, sem setur á tímabili 9 stig í röð fyrir sínar konur. Njarðvíkurliðið svarar þessu ágætlega undir lok fjórðungsins og taka forystuna fyrir lokaleikhlutann, 71-62.
Í fjórða leikhlutanum gerir Valur vel að missa þær ekki enn lengra frá sér. Ná að koma að einhverju leyti til baka, staðan 77-74 þegar um fjórar mínútur eru eftir. Áfram halda þær og eru tveimur stigum frá þeim þegar tvær mínútur eru eftir, 81-79. Jafna svo loks með körfu frá Ísey þegar tæpar tvær eru til leiksloka, 81-81.
Leikar eru svo æsispennandi á lokasekúndunum. Helga kemur Njarðvík yfir 87-85 þegar 14 sekúndur eru eftir. Tekur svo frákastið af klikkaðri skottilraun Vals í sókninni á eftir og var það nóg til að innsigla sigurinn, 87-85.
Stigahæstar
Besti leikmaður úrslitanna var Hulda María Agnarsdóttir með 30 stig, 4 fráköst, 7 stoðsendingar og 4 stolna bolta. Henni næst hjá Njarðvík var Kristín Björk Guðjónsdóttir með 16 stig og 9 stoðsendingar.
Atkvæðamestar fyrir Val í dag voru Ísey Guttormsdóttir með 32 stig, 14 fráköst, 7 stoðsendingar og Ásdís Jónsdóttir með 28 stig.











