spot_img
HomeBikarkeppniKR bikarmeistarar 2026 eftir stórkostlegan sigur gegn Stjörnunni

KR bikarmeistarar 2026 eftir stórkostlegan sigur gegn Stjörnunni

KR varð í dag VÍS bikarmeistari karla eftir sigur gegn Stjörnunni í úrslitaleik, 84-100.

Leikurinn var annar tveggja bikarúrslitaleikja í dag, en nú kl. 18:00 hefst úrslitaleikur Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.

Fyrir leik

Á leið sinni í úrslitaleikinn lagði KR lið Tindastóls í undanúrslitum á meðan Stjarnan hafði betur gegn Keflavík í undanúrslitunum í æsispennandi leik.

Stjarnan á harma að hefna gegn KR í VÍS bikarkeppninni, en í fyrra hafði KR betur gegn Stjörnunni í undanúrslitum. Í úrslitaleiknum töpuðu þeir svo fyrir Val.

Í tvígang hafa liðin mæst í deildinni í vetur. Hafa þau skipt með sér sigrum í leikjunum tveimur. Fyrri leikinn vann KR í Vesturbænum með 4 stigum, en þann seinni tók Stjarnan í Garðabæ með 2 stigum.

KR hefur unnið bikarinn oftast allra liða eða í heil 12 skipti. Stjarnan er öllu neðar á þeim lista, í 4. sætinu með 6 bikarmeistaratitla, en þeir gátu með sigri í dag jafnað Keflavík að bikartitlum í 3. sætinu.

Síðast varð KR bikarmeistari árið 2017 eftir sigur gegn Þór í úrslitaleik, á meðan Stjarnan vann titilinn síðast árið 2022, einnig, eftir sigur gegn Þór í úrslitaleik.

KR og Stjarnan áttust við í einum frægasta bikarúrslitaleik allra tíma árið 2009. Þá var Stjarnan ekki taldir sigurstranglegir gegn KR, en unnu leikinn og þar með sinn fyrsta titil, 76-78.

Gangur leiks

Leikurinn fór nokkuð fjörlega af stað og ljóst var á báðum liðum að þau ætluðu að selja sig dýrt fyrir titilinn sem í boði var í dag. Linards fór fyrir sínum mönnum í KR á meðan Giannis og Seth gerðu slíkt hið sama fyrir Stjörnuna.

KR-ingar voru þó skrefinu á undan allan fyrri hálfleikinn. Leiddu með sjö stigum að fyrsta fjórðung loknum og 13 stigum í hálfleik, 43-56. Mikið til var sá munur kominn vegna frákasta fyrir KR, en á báðum endum vallarins voru þeir betri í því en Stjarnan og tóku næstum helmingi fleiri í fyrri hálfleiknum en þeir.

Fengu einnig nokkur skot til að detta, en stigahæstur fyrir KR í fyrri hálfleiknum var Linards með 17 stig og honum næstur KJ Doucet með 11 stig.

Fyrir Stjörnuna var stigahæstur Seth LeDay með 9 ogPablo og Hilmar Smári voru hvor um sig með 8 stig.

Stjarnan gerir ágætlega í upphafi seinni hálfleiksins, en þeim virðist fyrirmunað að setja körfu í tveimur sóknum eða fleiri í röð. Þar af leiðandi verður ekkert áhlaup að raunveruleika hjá þeim í þriðja leikhlutanum og KR leiðir enn með 9 stigum fyrir lokaleikhlutann.

KR hefur góð tök á leiknum í upphafi þess fjórða og mest fer forysta þeirra í 19 stig. Stjarnan er þó ekki af baki dottin og ná þeir með herkjum að koma mun liðanna í 9 stig þegar um þrjár mínútur eru til leiksloka. Það er þó dýrkeypt fyrir þá að fara eitthvað lengra, þar sem vörnin sem þeir spiluðu á þeim tímapunkti var ekki til þess gerð að halda mönnum inni á vellinum. Einn af einum fara lykilmenn þeirra að tínast útaf og með þeim öll von um að gera þetta að spennuleik á lokasekúndum.

Að sama skapi gerði KR vel á þessum lokakafla. Settu vítin sín, pössuðu boltann ágætlega og uppskáru að lokum nokkuð öruggan, en gífurlega sterkan 16 stiga sigur, 84-100.

Atkvæðamestir

Linards var valinn besti leikmaður eftir að leik lauk, en hann var stórkostlegur fyrir KR í dag með 26 stig og 13 fráköst. Honum næstur í liði KR var fyrirliðinn Þórir Guðmundur Þorbjarnarson með 17 stig, 7 fráköst og 9 stoðsendingar.

Fyrir Stjörnuna var Seth LeDay bestur með 19 stig og 19 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -