Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum í dag laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.
Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Daníel Andri Halldórsson þjálfari KR í Bónus deild kvenna og aðstoðarþjálfari íslenska landsliðssins spáir KR og Keflavík titlunum í dag.
Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar
Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni
Hvernig fer leikurinn? 96-91 fyrir KR.
Hvernig á hann eftir að spilast?
Leikurinn mun fara hratt af stað með miklum látum sóknarlega hjá báðum liðum. Það hægist svo á stigaskori í seinni hálfleik en KR finna taktinn á lokamínútum með Toms og Tóta í fararbroddi.
Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík
Hvernig fer leikurinn? 78-85
Hvernig á hann eftir að spilast?
Bæði lið munu leita til sinna styrkleika snemma í leiknum þar sem Grindvíkingar munu reyna að böðlast á minna liði Keflavíkur inni í teig. Keflavíkurkonur munu keyra upp hraðann í leiknum. Lykilleikmenn Grindavíkur lenda í villuvandræðum og Keflavík sigla þessu heim.




