Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum í dag laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.
Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Mikael Máni Hrafnsson þjálfari Breiðabliks í fyrstu deildinni og yngri landsliða Íslands spáir Grindavík og Stjörnunni titlinum í dag.
Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar
Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni
Hvernig fer leikurinn? Eins körfu sigur hjá Stjörnunni.
Hvernig á hann eftir að spilast?
Stóri Luka Gasic leikurinn, KR-ingar munu ekki eiga svör við honum.
Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík
Hvernig fer leikurinn? 88-70
Hvernig á hann eftir að spilast?
Öruggt frá byrjun til enda fyrir Grindavík.




