Úrslitaleikir VÍS bikarkeppninnar verða leiknir í Smáranum í dag laugardag. Fyrri leikurinn er leikur KR og Stjörnunnar í meistaraflokki karla, en sá seinni er á milli Keflavíkur og Grindavíkur í meistaraflokki kvenna.
Karfan fékk nokkra málsmetandi aðila til þess að spá fyrir um leikina tvo. Viðar Örn Hafsteinsson þjálfari Hattar og aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins spáir því að Grindavík og Stjarnan eigi eftir að vinna
Hérna eru allir leikir VÍS bikarvikunnar
Úrslitaleikur karla – KR gegn Stjörnunni
Hvernig fer leikurinn? Stjarnan vinnur með 3 stigum í hörkuleik
Hvernig á hann eftir að spilast?
Verður kaflaskipt. Stjarnan á eftir að byrja betur, hafa verið að koma og keyra yfir lið til að byrja með í síðustu leikjum. Svo kemst þetta í jafnvægi og KR munu eiga séns í lokin en Stjarnan klárar þetta. Meiri gæði og breidd í Stjörnuliðinu sem verður leitt áfram af Ægi og Luka Gasic sem munu vera bestu menn leiksins.
Úrslitaleikur kvenna – Grindavík gegn Keflavík
Hvernig fer leikurinn? Grindavík vinnur með 10-15 stigum
Hvernig á hann eftir að spilast?
Verður jafnt framan af en Grindavík mun ná stjórn þegar líður á seinni hálfleik. Grindavík klárar þetta svo sannfærandi og verður ekki spenna í lokin. Abby Beeman mun stýra umferðinni og eiga stórleik.




