Ísland mætir Serbíu komandi miðvikudag 12. nóvember í fyrsta leik sínum í undankeppni EuroBasket 2027.
Leikurinn er annar tveggja í þessum fyrsta glugga keppninnar, en sá seinni er gegn Portúgal ytra á þriðjudaginn eftir næstu helgi, 18. nóvember.
Karfan kom við á æfingu hjá liðinu í dag og ræddi við nýliða í hóp Íslands Rebekku Rut Steingrímsdóttur um fyrstu æfingarnar og mögulega leikina fyrir A landslið Íslands. Þá svarar hún spurningunni hversu duglegir reynslumeiri leikmenn hópsins og hvernig henni lítist á Serbíu og Portúgal sem fyrstu andstæðinga undankeppninnar.



