Hálfleikur er nú í lokaleik Íslands gegn Frakklandi í riðlakeppni lokamóts EuroBasket 2025 í Katowice í Póllandi.
Óhætt er að segja að franska liðið sé með öll tök á leik dagsins, leiddu með 27 stigum eftir fyrsta leikhluta og eru nú í hálfleik 32 stigum á undan, 66-34.
Stigahæstir fyrir Ísland í fyrri hálfleiknum eru Martin Hermannsson með 10 stig og Tryggvi Snær Hlinason með 8 stig.



