spot_img
HomeFréttir38 stiga tap fyrir Lettum

38 stiga tap fyrir Lettum

{mosimage}

(Örn Sigurðarson) 

Íslensku strákarnir áttu sinn slakasta leik í dag gegn Lettum þar sem staðan í hálfleik var 54-32 og lokatölur 94-56. Stigahæstur í liði Íslendinga var Örn Sigurðarson með 14 stig og 7 fráköst.  

< Alltof mikið af hraðupphlaupum og auðveldum körfum gerðu útslagið þar sem að sterkt lið Letta sigruðu auðveldlega hálfslappa Íslendinga. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 33-33 og náðu Lettar að taka oft á tíðum tvö sóknarfráköst til að skora í hálfleik 54-32.

Örn Sigurðarson var með 12 stig í fyrri hálfleik og var að hitta ágætlega. Í síðari hálfleik bættu Lettar við forystuna og sigruðu þeir að lokum með 38 stigum. Leikur strákanna var ekki uppá marga fiska og áttu þeir sinn lélegasta leik á mótinu. Allir leikmenn fengu góð tækifæri í leiknum sem endaði 94-56. Á morgun eiga strákarnir leik gegn Slóvenum sem töpuðu í dag gegn Grikkjum 61-79, Ingi Þór og Halldór fylgdust með leik Grikkja og Slóvena og voru þar á ferðinni tvö góð lið, verkefni strákanna er því strembið, en þeir eru staðráðnir í að standa sig betur. 

Sigmundur Már Herbertsson dæmdi leik Rússa og Króatíu, en Rússar sigruðu leikinn 82-66. Sigmundur Már hefur fengið mjög góða dóma hérna sem sést best í því hvaða leiki honum hefur verið úthlutað.

 

Frétt af www.kki.is

Fréttir
- Auglýsing -