Ungur KR-ingur landaði 240 brakandi ferskum flöskum af Powerade í gærkvöldi þegar hann hitti úr miðjuskoti Powerade á stórslag KR og Snæfells í DHL-Höllinni.
Oddur heitir þessi ungi maður sem nú er um 120kg. ríkari af Powerade en leikgestir klöppuðu þessum unga og skotvissa manni mikið lof í lófa við afrekið. Það fylgir ekki sögunni hvort og þá hvernig Oddur hafi komið öllum drykkjarföngunum heim í hús í gærkvöldi.
Myndir/ www.kr.is/karfa



