spot_img
HomeFréttir22. og 23. oddaleikurinn um sæti í lokaúrslitunum

22. og 23. oddaleikurinn um sæti í lokaúrslitunum

17:46 

{mosimage}

 

 

Oddaleikir undanúrslitaeinvíga Iceland Express deildar karla fara fram í DHL-Höllinni og í Ljónagryfjunni í kvöld. Þetta er aðeins í fimmta sinn í 24 ára sögu úrslitakeppni úrvalsdeildar karla þar sem báðar undanúrslitaseríunnar fara alla leið í úrslitaleik. Það gerðist síðast árið 2000 en einnig 1994, 1992 og 1988. Frá þessu er greint á www.kki.is  

Alls hefur 21 einvígi í undanúrslium úrslitakeppni karla farið í oddaleik og þar hafa heimaliðin (KR og Njarðvík í kvöld) haft betur í 62% tilfella. Útiliðin (Snæfell og Grindavík í kvöld) hafa hinsvegar unnið fjóra af síðustu sex leikjum þar á meðal í fyrra þegar Skallagrímur sló Keflavík út í Keflavík. Síðasti sigur heimaliðs í oddaleik í undanúrslitaeinvígi úrslitakeppni karla var 109-77 sigur Grindavíkur á Tindastól árið 2003.

KR og Grindavík tryggðu sér oddaleik með sigri í fjórða leiknum, KR á útivelli í Stykkishólmi en Grindavík á sínum heimavelli. Það lið sem hefur unnið fjórða leikinn hefur komist áfram í lokaúrslitin í 43% tilfella þar á meðal í tveimur síðustu undanúrslitaeinvígnum sem hafa farið í oddaleik. Skallagrímur vann tvo síðustu leiki sína gegn Keflavík í fyrra og árið 2004 slógu Keflavíkingar nágranna sína úr Grindavík út með því að vinna tvo síðustu leiki einvígisins.

Njarðvík er komið í oddaleik í undanúrslitum í sjöunda sinn í sögu úrslitakeppninnar en liðið hefur komið áfram í helmingi þessarra leikja. Njarðvík spilaði síðast oddaleik í undanúrslitaeinvígi árið 2000 og tapaði þá 55-78 á heimavelli á móti KR.

{mosimage} 

Grindvíkingar er í sínum sjötta oddaleik um sæti í lokaúrslitunum og þeir hafa unnið fjóra af fimm leikjum sínum til þessa. Grindavík vann fjóra fyrstu oddaleiki sína í undanúrslitaeinvígum en tapaði hinsvegar þeim síðasta sem var á heimavelli gegn Keflavík árið 2004. Keflavík vann leikinn 89-101.

KR-ingar hafa spilað fjóra oddaleiki um sæti í undanúrslitum og tapað þremur þeirra. Þetta er aftur á móti í fyrsta sinn sem liðið er á heimavelli í slíkum leik. KR vann sinn eina sigur í síðasta oddaleik sínum í undanúrslitunum þegar liðið sótti 55-78 sigur til Njarðvíkur. KR fór síðan alla leið og varð Íslandsmeistari árið 2000.

Snæfellingar eru í fyrsta sinn komnir í oddaleik í undanúrslitaeinvígi í úrslitakeppninni. Snæfell hefur spilað tvo oddaleik í átta liða úrslitum og þeir voru báðir gegn KR líkt og sá fyrsti sem þeir spila í undanúrslitum í kvöld.

Oddaleikir um sæti í lokaúrslitum:

1984:* Valur 87-79 KR
1985:* Haukar 76-74 (68-68) Valur
1986:* Haukar
81-76 Valur
1987:* Keflavík
74-90 Valur
1988:* Njarðvík
81-71 Valur
1988:* Keflavík
79-81 (72-72) Haukar
1990:* Keflavík
88-86 (74-74, 76-76) Njarðvík
1991:* Keflavík
86-80 KR
1992:* Njarðvík
78-82 (73-73) Valur
1992:* Keflavík
87-73 KR
1993:* Keflavík
71-67 Skallagrímur
1994:* Keflavík
91-98 Njarðvík
1994:* Grindavík
94-77 ÍA
1995: Grindavík
81-77 Keflavík
1998: Njarðvík
93-88 Keflavík
2000: Njarðvík
55-78 KR
2000: Haukar
56-59 Grindavík
2001: Tindastóll
70-65 Keflavík
2003: Grindavík
109-77 Tindastóll
2004: Grindavík
89-101 Keflavík
2006: Keflavík
80-84 Skallagrímur
2007: KR-Snæfell
2007: Njarðvík-Grindavík
* Þarf bara að vinna tvo leiki
Sigurhlutfall:
Heimalið: 13-8, 62%
Sigurvegari annars/fjórða leiks: 9-12, 43%
 

www.kki.is

 

Fréttir
- Auglýsing -