spot_img
HomeFréttir15 leikmanna hópur Íslands fyrir Ítalíuleikina

15 leikmanna hópur Íslands fyrir Ítalíuleikina

Ísland á tvo leiki gegn Ítalíu í undankeppni HM 2023 seinna í vikunni.

Leikið verður í Ólafssal að Ásvöllum 24. febrúar kl. 20:00 og svo heldur liðið út til Bologna á Ítalíu þar sem seinni leikurinn fer fram sunnudaginn 27. febrúar í PallaDozza-höllinni þar í borg.

Craig Pedersen og aðstoðarþjálfarar hans völdu 24 manna hóp fyrir nokkru sem var skráður leikmannahópur Íslands hjá FIBA og er löglegur til að leika í þessum glugga og nú hafa verið valdir og boðaðir til æfinga 15 leikmenn.

Nafn · Félag (landsleikir)
Elvar Már Friðriksson · Antwerp Giants, Belgíu (58)
Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (68)
Hörður Axel Vilhjálmsson · Keflavík (86)
Jón Axel Guðmundsson · Hakro Merlins Crailsheim, Þýskalandi (15)
Kári Jónsson · Valur (24)
Kristinn Pálsson · Grindavík (25)
Martin Hermannsson · Valencia Basket, Spáni (71)
Ólafur Ólafsson · Grindavík (47)
Pavel Ermolinskij · Valur (74)
Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Stjarnan (57)
Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (12)
Sigurður Gunnar Þorsteinsson · Tindastóll (58)
Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (49)
Þórir G. Þorbjarnarsson · Landstede Hammers Zvolle, Hollandi (16)
Ægir Þór Steinarsson · Gipuzkoa Basket, Spáni (66)

Kristófer Acox gaf ekki kost á sér að þessu sinni.

Aðrir leikmenn sem voru valdir og eru skráðir leikmenn til vara eru: Dagur Kár Jónsson, Stjarnan, Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þorlákshöfn, Collin Pryor, ÍR, Gunnar Ólafsson, Stjarnan, Hjálmar Stefánsson, Valur, Hilmar Pétursson, Breiðablik, Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan og Ragnar Örn Bragason, Þór Þorlákshöfn.

Fréttir
- Auglýsing -