spot_img
HomeÚti í heimiEvrópa14 stig og 11 stoðsendingar Elvars ekki nóg gegn Kėdainių Nevėžis

14 stig og 11 stoðsendingar Elvars ekki nóg gegn Kėdainių Nevėžis

Elvar Már Friðriksson og Šiaulių Šiauliai töpuðu fyrrí dag fyrir Kėdainių Nevėžis í LKL deildinni í Litháen, 96-77. Eftir leikinn eru Nevėžis sem áður í efri hluta töflunnar á meðan að Šiauliai leita enn að fyrsta sigurleik vetrarins.

Atkvæðamestur fyrir Nevėžis í leiknum var Julius Kazakauskas með 13 stig, 8 fráköst og 4 stoðsendingar. Fyrir Šiauliai var það Arminas Urbutis sem dróg vagninn með 21 stigi og 6 fráköstum.

Elvar var sem áður í stóru hlutverki hjá liðinu í leiknum, skilaði 14 stigum, 3 fráköstum og 11 stoðsendingum á rúmum 38 mínútum spiluðum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -