spot_img
HomeFréttir14 leikmanna lokahópur Íslands klár fyrir leikina í Svartfjallalandi

14 leikmanna lokahópur Íslands klár fyrir leikina í Svartfjallalandi

Nú í morgun var það kynnt hvaða 14 leikmenn það verða sem leika fyrir Íslands hönd í seinni umferð forkeppni HM 2023 sem fram fer í Svartfjallalandi næstu dagana.

Leikir Íslands fara fram fimmtudaginn 12. ágúst og föstudaginn 13. ágúst í fyrri umferðinni og svo aftur mánudaginn og þriðjudaginn 16. og 17. ágúst. Allir leikirnir verða sýndir beint á RÚV og leiktími þeirra allra kl. 18:00 að íslenskum tíma.

Heimasíða keppninnar

FIBA hefur sett upp sóttvarnar „bubblu“ í Svartfjallalandi eins og liðið hefur tekið þátt í áður í síðastliðnum landsliðsgluggum og munu liðið því leika alla fjóra leiki sína gegn Svartfjallalandi og Danmörku í þessari lotu. Um er að ræða mjög mikilvæga leiki en tvö efstu liðin í riðlinum fara áfram í sjálfa undankeppnina sem hefst í haust.

Craig Pedersen hefur valið eftirfarandi 14 manna hóp í leikina:

Nafn, félag · landsleikir
Davíð Arnar Ágústsson, Þór Þorlákshöfn · 2
Elvar Már Friðriksson, Telnet Giants Antwerp, Belgíu · 52
Hilmar Smári Henningsson, Stjarnan · 6
Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík · 88
Kári Jónsson, Basket Girona, Spánn · 18
Kristinn Pálsson, Grindavík · 19
Kristófer Acox, Valur · 40
Ólafur Ólafsson, Grindavík · 42
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, Stjarnan · 51
Ragnar Örn Bragason, Þór Þorlákshöfn · 2
Sigtrygur Arnar Björnsson, Tindastóll · 16
Tryggvi Snær Hlinason, Zaragoza, Spánn · 43
Þórir Guðmundur Þorbjarnarson, KR · 11
Ægir Þór Steinarsson, Stjarnan · 66

Þjálfarar og starfsmenn liðsins:
Craig Pedersen · Þjálfari
Baldur Þór Ragnarsson · Aðstoðarþjálfari
Hjalti Þór Vilhjálmsson · Aðstoðarþjálfari
Valdimar Halldórsson · Sjúkraþjálfari
Hannes S. Jónsson · Fararstjóri
Kristinn Geir Pálsson · Liðsstjóri
Jón Bender · Sóttvarnarfulltrúi

Haukur Helgi Pálsson Briem og Styrmir Snær Þrastarson eru meiddir og geta ekki tekið þátt í verkefninu að þessu sinni. Þá þurfti Martin Hermannsson að draga sig úr hópnum vegna skyldna við félagslið sitt á Spáni og Jón Axel Guðmundsson er í sumardeild NBA og gat ekki gefið kost á sér.


Fréttir
- Auglýsing -