spot_img
HomeFréttir1 á 1: Ari Gunn í spjalli um ferilinn og síðustu daga:...

1 á 1: Ari Gunn í spjalli um ferilinn og síðustu daga: „Brottreksturinn kom mjög á óvart“

Í þessum þætti af 1 á 1 fáum við umræddasta mann vikunnar í heimsókn. Ari Gunnarsson hefur marga fjöruna sopið sem leikmaður og þjálfari. Farið er yfir ferilinn og góðar sögur rifjaðar upp. Einnig er farið yfir mál vikunnar þar sem Ari var látinn taka pokann sinn hjá Skallagrím og hefur eftir það sagt frá vinnuumhverfinu sem hann þurfti að þola þar.

Podcast Körfunnar er í boði Dominos og minnt er á að hlustendur fá 30% afslátt af sóttum pítsum með kóðanum “karfan.is” panti þeir í gegnum Dominos.is eða með Dominos appinu.

Þátturinn er einnig á iTunes

Umsjón: Ólafur Þór Jónsson

Efnisyfirlit:

1:00 – Uppeldið hjá Val

5:00 – Viðkoma í Svíþjóð og Patreksfirði

7:10 – Þrettán ár í Borgarnesi

17:45 – Eftirminnilegustu samherjarnir og mótherjarnir

22:00 – Spilar og þjálfar hjá Hamri

26:45 – Andrúmsloftið hjá KR heillaði

32:45 – Endurkoma til Vals og rýtingur í bakið þar

37:00 – Ari tekur við Skallagrím eftir undanúrslit í bikar

41:15 – Ekkert undirbúningstímabil og viðvörunarbjöllur hringja

47:45 – Brottreksturinn frá Skallagrím frá A-Ö – „Það þarf eitthvað að gerast“

Fréttir
- Auglýsing -