spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaYngvi yfirgefur Vestra

Yngvi yfirgefur Vestra

Yfirþjálfari Vestra, Yngvi Páll Gunnlaugsson, hefur komist að samkomulagi við félagið um að láta af störfum samkvæmt fréttatilkynningu. Ástæður þess eru breyttir fjölskylduhagir þjálfarans, en stefnir hann og fjölskyldan suður í höfuðborgina komandi haust.

Yngvi hefur átt farsælan feril hjá Vestra en hann tók við starfi yfirþjálfara körfunnar fyrir sléttum þremur árum. Hann hefur stýrt meistaraflokki karla í 1. deild ásamt því að vera yfir öllu starfi yngri flokka deildarinnar og þjálfa einstaka aldurshópa, jafnt stúlkur sem drengi. Hann varð bikarmeistari 2017 með 9. flokk drengja og undir hans forystu hafa yngri lið körfunnar náð góðum árangri og sum keppt í efstu riðlum á Íslandsmótum. Einnig hefur fulltrúum Vestra í yngri landsliðum KKÍ fjölgað í hans tíð auk þess sem meistaraflokkur kvenna er mögulega í burðarliðnum hjá deildinni eftir langt hlé.

Færir stjórn Vestra Yngva þakkir fyrir góð og gefandi störf í þágu félagsins og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi

Fréttir
- Auglýsing -