HomeÚti í heimiEvrópaGóður árangur 10. flokks Álftaness í Barcelona

Góður árangur 10. flokks Álftaness í Barcelona

Lið Álftaness í 10. flokki drengja er nýkomið heim af sterku Evrópumóti á vegum ungmennadeildar Evrópu (EYBL), en keppnin fór fram í Barcelona um liðna helgi. Strákarnir léku fjóra leiki á jafnmörgum dögum og stóðu sig með miklum sóma; unnu tvo leiki gegn liðum frá Spáni og Hollandi en máttu þola tap gegn öflugum liðum frá Tékklandi og Ítalíu.

Mótaröð EYBL er gríðarlega umfangsmikil en um 600 lið taka þátt í henni ár hvert, þar af 81 lið í aldursflokki U16 drengja. Flest sterkustu félagslið og helstu körfuboltaakademíur álfunnar senda sína efnilegustu leikmenn til leiks, en Álftnesingar leika í 12 liða riðli með félögum frá níu löndum.

Ferðalagið var mikið ævintýri fyrir unga Álftnesinga sem snúa reynslunni ríkari heim, ekki síst í ljósi þess að hópurinn hefur glímt við talsverð meiðsli í upphafi vetrar. Það styttist þó óðum í að allir lykilmenn snúi aftur á völlinn.

Fram undan eru fleiri spennandi verkefni erlendis sem og heima fyrir. Liðið heldur til Rómar í febrúar næstkomandi þar sem mætt verður meðal annars U16 landsliðshópi Portúgals, auk þess sem stefnt er að þátttöku í hinu virta Scania Cup í Svíþjóð í lok mars 2027. Meginmarkmið vetrarins er skýrt: að spila til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 10. flokki.

Þjálfari liðsins er Halldór Kristmannsson og Baldur Þór Ragnarsson heldur utan um styrktarþjálfunina.

Fréttir
- Auglýsing -