8:10
{mosimage}
Höttur sigraði í B riðli 7. flokks
Á heimsíðum félaganna er að finna skemmtilegar umfjallanir af leikjum yngri flokkanna um helgina. Á heimasíðu KR er t.d. umfjöllun um fjölliðamót sem fram fór í DHL höllinni en það var B riðill 7. flokks.
Skemmtileg umfjöllun og mikið af myndum.
Á heimasíðu Keflavíkur er sagt frá 7. flokki sem keppti í Njarðvík.
Breiðablik er með A og B lið í 7. flokki sem léku bæði um helgina.
{mosimage}
Úr leik Vals og Tindastóls í 8. flokki kvenna
8. flokkur kvenna hjá Fjölni var á Sauðárkróki. Á heimasíðu Tindastóls eru öll úrslit og myndir.
8. flokkur kvenna lék á Ísafirði dögunum og KR ingar skrifa um það ásamt Njarðvíkingum.
C riðill 8. flokks kvenna var leikinn á Flúðum og þar voru Blikastúlkur mættar til leiks með 7. flokk sinn sem b lið.
Einnig segja KR ingar frá 8. flokk karla sem lék í Þorlákshöfn en það var A riðill.
B riðill 8. flokks karla fór fram í Vestmanneyjum og Vestmanneyingar skrifa um það.
C riðill 8. flokks karla fór fram í Ásgarði og á heimasíðu Hauka má lesa um mótið.
Þá fór B lið 8. flokks karla KR til Hornafjarðar og lék í D riðli.
Stjörnumenn segja frá 10. og 7. flokki á sinni síðu.
A riðill 10. flokks karla var leikinn á Sauðárkróki og á heimasíðu Fjölnis er skrifað um það. Á heimsíðu Tindastóls má svo finna öll úrslit úr mótinu.
Þá fór 9. flokkur Fjölnis sem b lið í 10. flokki til Flúða og lék í D riðli. Þar voru einnig Blikar.
9. flokkur Breiðabliks spilar einnig sem b lið í 10. flokki og þeir kepptu á Egilsstöðum í C riðli.
10. flokkur KFÍ var í fullu fjöri í Grindavík.
{mosimage}
10. flokkur ÍBV
ÍBV lék í Grindavík í A riðli 10. flokks.
Í lok september fóru fram fjölliðamót 11. flokks. A riðill var leikinn í Smáranum og um það má lesa á heimasíðu Blika.
Mynd af Hetti: www.kr.is/karfa
Mynd úr leik Vals og Tindastóls: www.tindastoll.is
Mynd af ÍBV: www.ibv.is/karfa