Árlegt Jólamót ÍR í körfubolta fer fram í Skógarseli í Breiðholti um næstu helgi, dagana 28.–29. nóvember. Mótið er nú haldið fimmtánda árið í röð og er ætlað iðkendum í 1.–4. bekk.
Strákar spila á laugardeginum 28. nóvember en stelpur spila á sunnudeginum 29. nóvember. Hver leikur er 12 mínútur að lengd og fá öll lið fjóra til fimm leiki á mótinu. Þátttökugjald er 3.800 krónur á hvern þátttakanda og er gjöf og liðsmyndataka að loknu móti innifalin.
ÍR-ingar ætla að sjá til þess að sannkallaður jólaandi svífi yfir vötnum í Skógarseli og munu óvæntir gestir mæta á svæðið til að skemmta jafnt börnum sem fullorðnum.
Skráning á mótið fer fram í gegnum netfangið [email protected].




