spot_img
HomeFréttirYfirlýsing leikmanna drengja-, stúlkna- og unglingaflokks "Við erum framtíðin"

Yfirlýsing leikmanna drengja-, stúlkna- og unglingaflokks “Við erum framtíðin”

Í gær voru kynntar rýmkaðar sóttvarnartakmarkanir sem taka gildi á morgun. Nokkur breyting er í þeim er varðar æfingar í körfubolta, þar sem nú er liðum í efstu deildum karla og kvenna heimilt að hefja æfingar á nýjan leik, í fyrsta skipti síðan í byrjun október.

Nokkuð ljóst er að þessar tilslakanir koma mörgum hópum leikmanna vel. Þó ef að er gáð, er einn hópur sem ekki hefur fengið leyfi til æfinga, sem þó án alls vafa er mjög mikilvægur, en það eru ungmenni á framhaldskólaaldri.

Hér fyrir neðan er sameiginleg yfirlýsing leikmanna drengja-, stúlkna- og unglingaflokks, sem samin var af Kareni Lind Helgadóttur. Í henni er bent á þá furðulegu staðreynd að öll önnur börn hafi fengið heimild til æfinga, sem og efstu deildir kvenna og karla á meðan að þau, 16-18 ára sé ennþá bannað að mæta á æfingar.

Yfirlýsing:

Við erum framtíðin

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að tilkynnt var um nýjar sóttvarnareglur fyrir okkur þjóðina í gær. Í þessum sóttvarnarreglum kom fram að en þá verður 10 manna samkomubann, opnað verður fyrir sundlaugar og úrvalsdeildarlið íþrótta mega byrja æfa aftur.


Okkur langar að stíga fram og tala fyrir hönd unga fólksins sem hefur að okkar mati einhvern veginn týnst alveg í umræðunni þegar kemur að Covid-19. Okkur finnst fáránlegt að við sem erum á framhaldsskólaaldri séum ekki í forgangi að mega byrja stunda áhugamál okkar, semsagt mæta á æfingar, í æskulýðsstarf, fara í ræktina eða hvert svosem áhugamálið okkar er. Það hefur oft komið fram í rannsóknum að hreyfing er mjög mikilvæg fyrir andlega og líkamlega heilsu og er núna búið að loka á okkar leið til að fá þá útrás sem hreyfing er, í nokkrar vikur og nokkra mánuði ef við teljum allt árið með.


Það sem okkur langar hins vegar að koma á framfæri er að drengja- ,stúlkna- og unglingaflokkur fá ekki að æfa. Við héldum að þetta myndu vera allra fyrstu flokkarnir til að detta inn í tilslakanir yfirvalda og finnst okkur þetta fáránleg forgangsröðun hjá stjórnvöldum.


Í stað þess að leyfa æfingar hjá úrvalsdeildarliðum finnst okkur að það hefði fyrst átt að leyfa æfingar hjá öllum yngri flokkum íþróttafélaganna. Við megum ekki gleyma því að flokkarnir okkar tilheyra barna-og unglingastarfi félagsliðanna.


Unga fólkið er að reyna að gera allt til vinna að sínum stærstu markmiðum, t.d. að verða atvinnumenn, landsliðsmenn, komast út í háskóla eða hvað sem er. Því miður getum við ekkert gert nema fara út að hlaupa í snjónum og gera armbeygjur heima. Þau hafa ekki komist inn í íþróttahús mest megnis af árinu og geta lítið gert til að ná sinni allra bestu frammistöðu í sinni íþrótt. Þetta ár sem við erum að missa af í íþróttahúsinu er eitt af því mikilvægasta hjá okkur, á þessum árum erum við að æfa eins og brjálæðingar, erum á 2-3 æfingum á dag alla daga vikunnar og náum við mestum framförum á þessum árum. Við getum hins vegar ekki gert neitt núna nema gera það besta í stöðunni og gera heimaæfingar og fara út að hlaupa sem okkur finnst ekki vera nóg.


Það hefur verið mikið í umræðunni að félögin séu að tapa miklum peningum og það sé ein af ástæðum þess að úrvalsdeildarliðin fengu að byrja að æfa aftur. Nú spyr við, hvort er andleg og líkamleg heilsa unglinga eða peningar félaganna mikilvægari?


Það er gjörsamlega búið að loka á allt líf okkar krakkanna í framhaldsskóla, við fáum ekki að mæta á æfingar, ekki í skólann, ekkert félagslíf, gjörsamlega búið að loka á allt lífið okkar á þessu ári. Félagsþörfin er sennilega aldrei meiri en akkúrat á þessum árum, við erum á mjög viðkæmum aldri og skiptir góð andleg og líkamleg heilsa mjög miklu máli en það er eins og flest öllum sé alveg sama um framtíðina en við unga fólkið eru framtíðin í þessu þjóðfélagi.

Það er mikilvægt fyrir okkur unga fólkið að við upplifum að það sé hlustað á okkur, að okkar skoðanir og okkar raddir heyrist. Það er okkar upplifun að það sé ekki verið verið að hlusta og ekki verið að koma til móts við okkar þarfir. Það er enginn sem talar við okkar og enginn sem hlustar. Erum við ekki hluti af þessu samfélagi? Er of mikils að ætlast til þess að það sé útskýrt fyrir okkur afhverju við fáum ekki að stunda okkar áhugamál? Það þarf að ræða hlutina, tala og hlusta. Talið við okkur, ekki tala til okkar, hlustið á okkur og heyrið hvað við höfum að segja.

Við erum FRAMTÍÐIN,
Fyrirfram þakkir,
Leikmenn drengja-, stúlkna- og unglingaflokks.

Fréttir
- Auglýsing -