HomeFréttirYfirburðir Njarðvík gegn Fjölni

Yfirburðir Njarðvík gegn Fjölni

Njarðvík og Fjölniri mættust í Bónusdeild kvenna í kvöld. Liðin á ólíkum stað í deildinni þar sem að Íslandsmeistarar Njarðvíkur eru ósigraðar á meðan Fjölnisstúlkur voru enn á höttunum á eftir sínum fyrsta sigri.  Njarðvík setti tóninn strax í þessum leik með því að setja fyrstu 9 stig leiksins og staðan var 13:3 eftir rúmlega 3 mínútna leik.  Þetta var í raun upphafið að leik kattarins að músinni þetta kvöldið.  Staðan eftir fyrsta leikhluta 30:13.

Strax nokkuð augljóst að getu munurinn á liðunum var töluverður og að kvöldið yrði langt fyrir gestina. Yfirburðirnir Njarðvíkur héldu áfram og Fjölniskonur voru líkt og dádýr upplýst í framljósunum á 18 hjóla trukk sem stefndi beint yfir þær. 58:22 voru hálfleikstölur og trukkurinn hálfur yfir dýrinu.

Það var svo sem fátt um fína drætti í þessum leik, hann gekk nokkuð hratt og snuðrulaust fyrir sig. Njarðvík vann yfirburða sigur en Fjölnisliðið fær prik fyrir að berjast allt til síðustu mínútu leiksins þrátt fyrir að hafa verið með vindinn í fangið allt kvöldið. Ungir leikmenn sem eru að fá ómetanlega reynslu og vissulega leynast þarna hæfileikar. Þær voru einfaldlega að etja kappi við töluvert sterkara lið. Ungir leikmenn Njarðvíkur fengu að spreyta sig og nýttu þær mínútur sínar nokkuð vel. Má þar kannski helst nefna Dagbjörtu Dóru Kristmannsdóttir, 15 ára sem setti niður 10 stig á um 15 mínútum.

Tölfræði leiksins

Fréttir
- Auglýsing -