Íslandsmeistarar Njarðvíkur héldu sigurgöngu sinni áfram í Bónus deild kvenna í kvöld með afgerandi sigri á liði Fjölnis, en heimakonur tóku frumkvæðið strax á upphafsmínútunum, leiddu 58–22 í leikhléi og sigldu öruggum tveimur stigum í höfn þar sem yngri leikmenn beggja liða fengu dýrmætar mínútur á gólfinu.
Í spilaranum hér að neðan má sjá viðtal við Emmu Theódórsson, leikmann Njarðvíkur, sem fór yfir frammistöðu meistaranna og gang leiksins í kvöld.




