22:08
{mosimage}
Karfan.is fór á stúfana eins og oft áður í leit að gömlum körfuboltakempum. Nú fundum við Magnús Matthíasson fyrrverandi leikmann Vals og landsliðsins. Magnús lék með Val á árunum 1990 til 93 en hann lék einnig um tíma í Bandaríkjunum.
Alls lék hann 77 leiki með Val í efstu deild og skoraði 21,1 stig að meðaltali, hann var lykilmaður í Val og var kjörinn besti leikmaður hennar 1991 og ári seinna léku Valsmenn til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn gegn Keflavík. Þá lék hann 57 A landsleiki á árunum 1987 til 94.
En hér kemur spjall okkar við kappann.
Hvað er Magnús Matthíasson að gera í dag?
– Ég bý með fjölskyludu í Kaliforníu á San Francisco svæðinu og vinn hjá fyrirtæki sem framleiðir tölvukubba í farsíma.
Ertu eitthvað viðloðandi körfubolta?
– Nei, ég er ekkert viðloðandi körfunni, nema hvað CEO-inn fer alltaf fram á að ég keppi í liðinu hans í firmakeppninni.
Fylgist þú með íslensku deildinni?
– Já ég fylgist með bæði landsliðinu og deildinni sem best ég get í gegnum kki.is og mbl.is. Það er gaman að sjá framfarirnar og þá sérstaklega gaman að sjá einstaklinga úr íslensku körfunni standa sig með erlendum félagsliðum.
Eftirminnilegir leikmenn frá því varst í boltanum hér heima?
– Það eru margir eftirminnilegir en þá sérstaklega ´67 árgangurinn (Teitur, Gummi, Guðjón, Kiddi), Valsmenn (Svali, Raggi, Torfi, Tommi, Símon, Matti), og svo ættingjar (Matti Einars, Matti Matt, Jón Viðar) en sá sem er ef til vill eftirminnilegastur er Webster vegna þess hvað það eru til margar fyndnar sögur til um kappann.
Kannski eina góða sögu í lokin.
– Þær eru svo margar, en ein saga sem kemur til huga og má birta á síðu sem þessari er þegar Frikki Ragnars fór inn a McDonalds í Wales og bað um „large coke with no klakes”, og svo þegar Webster var spurður útaf hverju hann hefði verið lagður inn á spítala og svaraði „læknirinn halda að ég sé veikur af því ég hætta að troða á unga punga”, og svo margar fleiri.
Mynd: Morgunblaðið