Tindastóll og KR áttust við í hörku leik í Síkinu í kvöld þar sem þeir röndóttu fóru með sigur af hólmi með þremur stigum 82-85, eftir gríðarlega baráttu. KR-ingar geta öðrum fremur þakkað Marcusi Walker fyrir kvöldið, en hann átti stórleik.
Stólarnir byrjuðu með Sean, Rikka, Hayward, Svabba og Helga Rafn. KR-ingar voru með hefðbundið byrjunarlið, þá Pavel, Marcus, Brynjar, Finn og Fannar.
Brynjar Þór setti fyrstu körfu leiksins, en heimamenn voru sprækir á upphafsmínútunum, Sean kom þeim í 11-6 en hann átti skínandi fyrsta leikhluta. Í stöðunni 15-14 var dæmd óskiljanleg óíþróttamannsleg villa á Hayward Fain þar sem hann kastaði sér á eftir boltanum ásamt einum KR-ingi. Gestirnir nýttu þetta vel, nældu sér í þrjú stig upp úr vítaskotunum og körfu á eftir og náðu forystunni 15-17. Sean Cunningham var að spila mjög vel fyrir Stólana í fyrsta leikhluta, Marcus Walker reyndi hvað eftir annað að stela af honum boltanum án árangurs og það opnaði leið Seans að körfu andstæðinganna nokkrum sinnum. Hayward Fain skoraði síðustu stig leikhlutans með tröllatroðslu og staðan 25-22 fyrir Tindastól.
Hayward opnaði 2. leikhlutann með körfu og víti í kjölfarið og kom Stólunum í 6 stiga forystu. Þá vaknaði Marcus Walker heldur betur til lífsins eftir stigalausan fyrsta leikhluta. Kappinn sá skoraði heil 17 stig í leikhlutanum og hélt KR-ingum á floti. Í stöðunni 32-32 og 5 mínútur eftir, skiptu Stólarnir í svæðisvörn og náðu undirtökunum aftur en Brynjar Þór setti tvo þrista og kom gestunum yfir 46-48. Það var síðan Hayward Fain sem setti niður þrist þegar fáar sekúndur lifðu fyrir hálfleiks og Tindastólsmenn leiddu í hálfleik 49-48.
Þegar þarna var komið við sögu hafði Sean Cunningham gert 13 stig en áhyggjuefni að hann var einnig kominn með þrjár villur. Hayward var líka með 13 stig í hálfleik, en hjá KR var það Marcus sem leiddi á stigatöflunni með 17 stig og Brynjar var með 12. Athygli vakti að Pavel Ermolinskij hafði óvenju hljótt um sig og kom síðar í ljós að hann átti við magakveisu að stríða.
Hafi einhver haldið að Marcus Walker væri hættur að raða niður stigum, þá var það mikill misskilningur. Hann opnaði seinni hálfleikinn með tveimur þriggja stiga körfum og mætti alveg sjóðheitur til leiks. KR-ingar voru skrefi á undan í þriðja leikhluta og voru með 7 stiga forystu þegar fjórði leikhlutinn hófst 63-70.
Heimamenn mættu gríðarlega ákveðnir til leiks í fjórða leikhluta. Svavar opnaði hann á þristi og skömmu síðar voru Stólarnir allt í einu komnir með forystu 71-70 þegar Hayward smellti þriggja stiga körfu niður. Næstu mínútur voru jafnar en þegar 4 mínútur lifðu leiks voru KR-ingar komnir með forystu 74-79. Þegar þarna var komið við sögu voru KR-ingar komnir í afar sterka svæðisvörn og áttu heimamenn erfitt með að koma góðum skotum á körfuna langtímum saman. Helgi Rafn minnkaði þó muninn í 5 stig 78-83. Næstu augnablik voru ansi viðburðarrík. Marcus fékk dæmdar á sig sjaldgæfar 8 sekúndur, en ekki náðu Stólarnir að nýta sér það. Fannar fékk dæmd á sig skref í næstu sókn KR-inga og Hayward fylgdi á eftir með ruðningi á hinum endanum. Þarna voru 57 sekúndur eftir og KR með boltann. Helgi Rafn stal þá boltanum af harðfylgi og skoraði jafnvel af enn meira harðfylgi og minnkaði muninn í 3 stig 80-83 þegar 45 sekúndur voru eftir. Pavel klikkaði á þriggja stiga skoti þegar 22 sekúndur voru eftir og allt á suðupunkti. Tindastólsmenn tóku leikhlé og hefði Borce þjálfari vafalaust viljað sjá sína menn gera betur í sókninni sem fylgdi á eftir. Svavar setur hindrun hátt uppi fyrir Hayward sem keyrir inn í þvöguna í teignum í stað þess að senda á Svavar sem var frír fyrir utan þriggja stiga línuna. Við þetta missir hann boltann, skellur í gólfið og vildu áhorfendur jafnvel meina að villa hefði verið sanngjarn dómur á KR-inga þar. Marcus Walker hafði ekki miklar áhyggjur af því, hirti boltann upp og hljóp alla af sér upp völlinn og setti stig sín nr. 38 á töfluna og aðeins 7,3 sekúndur eftir. Helgi Rafn skoraði svo síðustu stig leiksins í þann mund er flautan gall og þriggja stiga sigur KR-inga staðreynd í Síkinu.
Barátta heimamanna var til mikillar fyrirmyndar. Talsverð meiðsli hafa verið í herbúðum liðsins undanfarið og lék Hreinn Birgisson t.d. ekki með liðinu vegna meiðsla. Þá var alveg ljóst að Kiki gekk ekki heill til skógar, en framlag hans var grátlega lítið í leiknum. Þá geta KR-ingar þakkað Marcusi Walker fyrir að hafa klárað þennan leik, kappinn sá er hreinlega ekki hægt, eins og einhver sagði.
Besti maður Tindastóls í leiknum var Hayward Fain, þó hann hefði mátt spila aðeins betur úr spilunum undir lokin. Hann setti 33 stig með prýðis góðri skotnýtingu og tók 8 fráköst. Reyndar voru vítaskotin ekki að detta nægilega vel hjá honum að þessu sinni. Sean Cunningham setti 18 stig, Helgi Rafn 12, Friðrik Hreinsson var með 9 stig, Svavar Atli 7 og Kiki 3.
Hjá KR var það Marcus Walker sem var stigahæstur eins og áður hefur komið fram með 38 stig, Brynjar Þór var með 14, Fannar og Finnur Atli 8 hvor, Hreggviður gerði 7, Skarphéðinn og Ravel 3 hvor og Ágúst Angantýsson 2.
Dómarar voru þeir Kristinn Óskarsson og Davíð Hreiðarsson en þeir hafa báðir sannarlega átt betri daga.
Umfjöllun: Karl Jónsson





