spot_img
HomeFréttirVilt þú æfa með Jóni Axel?

Vilt þú æfa með Jóni Axel?

Það er ýmislegt sem körfuknattleiksiðkendur brasa í þessu samkomubannig og líklega flestir sem gera heimaæfingar og annað sem félögin hafa útbúið. Á morgun, þriðjudaginn 21. apríl fá hinsvegar allir frábært tækifæri til að æfa með einum besta körfuboltamanni landsins.

Jón Axel Guðmundsson er þessa dagana að undirbúa sig fyrir nýliðaval NBA deildarinnar sem hann ætlar sér að vera hluti af, en það ætti ef allt væri eðlilegt að fara fram í júní. Grindvíkingar og Jón Axel hafa því ákveðið að bjóða uppá æfingu með Jóni Axel og þjálfara hans.

Æfingin fer fram kl 18:30 á morgun, þriðjudag. En með Jóni er einkaþjálfari hans, Blake Boehringer. Farið verður í boltaæfingar, styrk, úthald og moves seríur.

Eina sem þarf að gera er að vera mætt með 2 körfubolta, 1 tennisbolta, handklæði og skrá sig á þessum link.

Einstakt tækifæri fyrir alla unga sem aldna körfuboltaiðkendur að bæta sig í þessu árferði sem uppi er. Því líkt og á sumrin er þetta tími til bætinga.

Fréttir
- Auglýsing -