Íslenska U20 landsliðið í körfubolta hefur farið hreinlega á kostum á Evrópumótinu í B-deild sem nú stendur yfir í Bratislava í Slóvakíu.
Liðið er enn taplaust eftir fyrstu fjóra leiki sína. Einn af algjörum lykilmönnum liðsins, Viktor, hefur átt stórkostlegt mót og verið einn fremsti leikmaðurinn á vellinum í hverjum einasta leik. Frammistaða hans hefur vakið verðskuldaða athygli út fyrir landsteinana, og hefur FIBA nú tilnefnt hann í kjörið yfir verðmætasta leikmann mótsins (MVP).
Nú er kjörið hafið á opinberri vefsíðu FIBA og þar geta stuðningsmenn lagt sitt af mörkum. Íslendingar og körfuboltaáhugafólk eru hvött til að sýna samstöðu, leggja okkar manni lið og kjósa Viktor. Það tekur aðeins örfáar sekúndur að gefa honum atkvæði og tryggja að framlag hans í þessu magnaða og taplausa íslenska liði fái þá viðurkenningu sem það á skilið.
Smelltu hér til að taka þátt í kosningunni á vef FIBA



