spot_img
HomeNeðri deildir1. deild karlaViðar Örn um komu Einars til Egilsstaða "Við ætlum að bæta í,...

Viðar Örn um komu Einars til Egilsstaða “Við ætlum að bæta í, setja meiri kraft í þjálfun”

Einar Árni Jóhannsson var í hádeginu kynntur sem nýr þjálfari Hattar á Egilsstöðum, en gert er ráð fyrir að hann muni þjálfa liðið með Viðari Erna Hafsteinssyni ásamt því að verða yfirþjálfari yngri flokka. Einar Árni kemur frá Njarðvík, þar sem hann hefur þjálfað síðustu þrjú tímabilin. Einar er að sjálfsögðu gríðarlega reynslumikill þjálfari, sem verið hefur með lið bæði í Dominos deildinni og þeirri fyrstu. Hann var t.a.m. sá þjálfari sem gerði Njarðvík síðast að Íslandsmeisturum árið 2006.

Samningur Einars við Hött er til þriggja ára, en meistaraflokkslið félagsins féll úr Dominos deildinni á þessu tímabili og mun því leika í þeirra fyrstu tímabilið 2021-22.

Karfan spjallaði við Viðar Örn laust eftir að blekið var komið á blað í Húsgagnahöllinni nú í hádeginu.

Fréttir
- Auglýsing -