HomeÚti í heimiEvrópaToppbaráttan harðnar á Spáni: Alicante jafnaði toppliðið eftir 40 stiga burst

Toppbaráttan harðnar á Spáni: Alicante jafnaði toppliðið eftir 40 stiga burst

Alicante hefur jafnað Estudiantes að stigum á toppi næstefstu deildar Spánar með átta stig í farteskinu og situr í öðru sæti deildarinnar. Sætið tryggðu þeir sér með því að gjörsigra lið Gipuzkoa með 40 stiga mun, 106:66.  

Kristinn Pálsson var afar skilvirkur á þeim stutta tíma sem hann fékk inni á vellinum. Þótt leiktími hans hafi einungis verið 15 mínútur náði hann að nýta hverja sekúndu afar vel; skoraði átta stig og bætti við þremur fráköstum í þessum yfirburðasigri Alicante.

Fréttir
- Auglýsing -