spot_img
HomeFréttirVF.is: Magnús með 60 stig!

VF.is: Magnús með 60 stig!

Það er óhætt að segja að Keflvíkingurinn Magnús Gunnarsson sé ein besta skytta sem Ísland hefur alið af sér í körfuboltanum. Magnús sýndi það og sannaði í dag þegar hann lék með B-liði Keflvíkinga en hann gerði sér lítið fyrir og skoraði 60 stig í leiknum, öll úr þriggja stiga skotum. Það gera 20 þriggja stiga körfur en til þess þurfti hann 35 tilraunir. Það gerir 57% nýtingu sem er ótrúlega gott. Nú er bara að fara í metabækurnar og athuga hvort einhver hafi hreinlega gert betur. vf.is greinir frá.
 
 
  
Mynd/ Magnús vann þriggja stiga keppnina í ár á Stjörnuleikshátíð KKÍ.
Fréttir
- Auglýsing -