Þór Akureyri trónir á toppnum yfir þau uppeldisfélög sem hafa skilað íslenska A-landsliði karla í körfubolta flestum framlagsstigum síðastliðin tíu ár, þökk sé einum manni: Tryggva Snæ Hlinasyni.
Þetta kemur fram í áhugaverðri tölfræðisamantekt sem Bjarki Ármann Oddsson birti á Facebook í dag, í aðdraganda komandi landsleikja Íslands gegn Bosníu og Tyrklandi.
Bjarki tók saman heildarframlagsstig allra landsliðsmanna úr 75 keppnisleikjum á tímabilinu 1. nóvember 2016 til 24. nóvember 2026 og flokkaði þau eftir uppeldisfélagi hvers leikmanns.
Alls komu 42 landsliðsmenn við sögu í leikjunum og söfnuðu samtals 6.242 framlagsstigum. Þar ber Þór Akureyri höfuð og herðar yfir önnur félög með 1.211 framlagsstig, sem öll koma frá Tryggva Snæ einum. Í öðru sæti kemur KR með 1.037 stig frá sjö uppöldum leikmönnum, Fjölnir er í þriðja sæti með 992 stig (fjórir leikmenn) og Njarðvík í því fjórða með 909 stig (fjórir leikmenn).
Framlagsstig íslenska A-landsliðsins eftir uppeldisfélagi (2016–2026):
- Þór Akureyri (1 leikmaður): 1.211 stig
- KR (7 leikmenn): 1.037 stig
- Fjölnir (4 leikmenn): 992 stig
- Njarðvík (4 leikmenn): 909 stig
- Grindavík (4 leikmenn): 656 stig
- Skallagrímur (3 leikmenn): 446 stig
- Haukar (8 leikmenn): 398 stig
- Breiðablik (1 leikmaður): 195 stig
- Þór Þorlákshöfn (2 leikmenn): 170 stig
- Stjarnan (3 leikmenn): 145 stig
- Hamar (1 leikmaður): 48 stig
- Tindastóll (2 leikmenn): 26 stig
- ÍR (1 leikmaður): 5 stig
- KFÍ/Vestri (1 leikmaður): 4 stig




