spot_img
HomeFréttirVestri í úrslit 2. deildarinnar

Vestri í úrslit 2. deildarinnar

Vestri og Aþena/Leiknir mættust í undanúrslitum 2. deildarinnar í kvöld í Jakanum á Ísafirði. Eftir jafnan fyrri hálfleik þá sigu heimamenn fram úr í þeim seinni og unnu að lokum öruggan 100-81 sigur.

Hjá Vestra var Jonathan Braeger eins og svo oft áður stigahæstur með 46 stig en honum næstir komu Sigurður Gunnar Þorsteinsson með 18 stig, Elmar Baldurson með 18 stig og Blessed Parilla með 11 stig.

Hjá gestunum var Tómas stigahæstur með 23 stig, Guðjón með 16 stig og Elvar með 12 stig.

Vestri mætir því annað hvort KFG eða KV í úrslitunum en þessi lið mætast á sunnudaginn næstkomandi.

Í úrslitunum er spilað heima og heiman og er fyrsti leikurinn eftir viku þann 12. apríl á Ísafirði, svo er útileikur þann 15. apríl og ef þörf er á þá er leikur þann 23 apríl aftur á Ísafirði.

Fréttir
- Auglýsing -