HomeFréttirVerðskuldaður Valssigur á Selfossi

Verðskuldaður Valssigur á Selfossi

Fsu tók á móti Val í Iðu á föstudagskvöld. Valsliðið náði 10 – 12 stiga forskoti strax í byrjun fyrsta leikhluta, ekki hvað síst fyrir tilstyrk erlendu leikmanna liðsins, sem hinir ungu FSu-arar urðu nánast að gjalti gegn, og lauk leikhlutanum á stöðunni 17 – 27. 
 
Í 2. leikhluta náðu FSu drengirnir þó áttum, og stöðunni 37 – 38 þegar sex og hálf mínúta var liðin, en lánaðist ekki að hindra Perre, nýjasta tilstyrk Vals, í að stela frá sér knettinum og skora í kjölfarið og staðan í hálfleik varð 41 – 48. Þannig má segja, að FSu hafi unnið þennan hluta með 24 stigum gegn 21.
 
Eftir leikhlé stóðu FSu drengirnir allnokkuð í andstæðingunum og náðu stöðunni 50 – 54 þegar rúmar 2 mínútur voru liðnar, en misstu móðinn að mestu eftir það, með stöðunni 58 -69, og þar með sigri Vals (21 gegn 17) í leikhlutanum.
 
Síðasti fjórðungurinn einkenndist af hvað mestri baráttugleði beggja liða og gerði áhorfendur jafnvel enn glaðari í geði en fyrr. Valsmenn höfðu undirtökin, en hinir ungu andstæðingar héldu þeim alveg við efnið, t.d. með stöðunni 70 – 75 um miðbikið, en þrátt fyrir góðan varnarleik FSu, sem hefndi sín í frábærri vítanýtingu Harðar H. Hreiðarssonar, fyrrum leikmanns Fsu, og áðurnefnds Perre, hélst upphafsmunurinn nokkurn veginn í leikslok, 78 – 87, þar sem FSu vann leikhlutann með 20 stigum gegn 18.
 
Stigahæstir hjá Val voru Perre (29), Hörður H. Hreiðarsson (21) og Wooten (14). Hjá FSu Valur Orri Valsson (22), Björn Kristjánsson (19) og Orri Jónsson (10).
 
Sem sagt, lokatölur: 78 – 87, verðskuldaður Valssigur í skemmtilegum leik með góðum dómurum.
 
 
Mynd/Úr safni: Hörður Helgi Hreiðarsson gerði 21 stig fyrir Val á föstudag.
 
Umfjöllun: Stefán Böðvarsson
Fréttir
- Auglýsing -