Lokaumferð Dominos deildar karla fer fram í kvöld. Öruggt er hvaða lið verða með í úrslitakeppninni sem hefst eftir viku, en staða þeirra innan efstu átta sætanna getur þó eitthvað riðlast með úrslitum kvöldsins.
Enn er einnig óráðið hvaða lið mun hampa deildarmeistaratitlinum þetta árið. Fyrir umferðina eru Haukar í efsta sæti deildarinnar, en fari svo að þeir tapi og bæði Tindastóll og ÍR sigri sína leiki. Þá eru liðin þrjú jöfn og samkvæmt innbyrðisútreikningum verða það þá ÍR-ingar sem taka titilinn.
Hvorki Haukar né ÍR hafa orðið deildarmeistarar í sögunni með núverandi fyrirkomulagi Úrvalsdeildarinnar eða síðan 8-liða úrslitakeppnin var tekið upp í árið 1995. Því er ljóst að blað verður brotið í sögu KKÍ og félagsins sem verður deildarmeistari á núverandi tímabili í kvöld.
Hverjir munu lyfta deildarmeistaratitlinum? #korfubolti
— Karfan.is (@Karfan_is) March 7, 2018
Leikir dagsins
Dominos deild karla:
Höttur Njarðvík – kl. 19:15
Tindastóll Stjarnan – kl. 19:15 í beinni útsendingu Tindastóll Tv
Keflavík ÍR – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Haukar Valur – kl. 19:15 í beinni útsendingu Stöð 2 Sport
Grindavík Þór Akureyri – kl. 19:15
Þór KR – kl. 19:15
1. deild karla:
ÍA FSu – kl. 19:15




