Íslenska kvennalandsliðið tekur á móti Aserbaídsjan í undankeppni EM 2029 á Ásvöllum í Hafnarfirði í kvöld klukkan 19:30.
Ísland situr á toppi A-riðils eftir tvo sigra í fyrstu tveimur leikjunum, gegn Sviss og Írlandi, og getur styrkt stöðu sína verulega á toppnum í kvöld. Aserbaídsjan er aftur á móti á botni riðilsins án sigurs eftir fyrstu tvo leiki sína.
Miðasala á leikinn fer fram í Stubb-appinu en fyrir þá sem komast ekki á völlinn verður leikurinn sýndur í beinni útsendingu á RÚV.




