HomeBónus deildinBónus deild kvennaVantaði alla hörku í okkur

Vantaði alla hörku í okkur

Njarðvíkingar minnkuðu muninn 1-2 í undanúrslitum gegn Grindavík í Bónusdeild kvenna í kvöld. Lokatölur 94-88 í leik þar sem Njarðvík leiddi frá upphafi til enda.

Bestu kaflar Grindavíkur í kvöld komu helst til of seint og slök skotnýting framan af leik var dýrt spaug. Dinkins átti enn einn stórleikinn fyrir Njarðvík með 31 stig, 7 fráköst, 6 stoðsendingar og 6 stolna bolta. Hjá Grindavík voru Ellen Nyström og Abby Beeman báðar með 23 stig.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Ólöfu Rún Óladóttur leikmann Grindavíkur eftir leik í IceMar höllinni.

Fréttir
- Auglýsing -